Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1465988652.79

    Íþróttastarfsnám
    ÍÞSN3AA02
    4
    íþróttir starfsnám
    Starfsnám A
    Samþykkt af skóla
    3
    2
    Nemendur skipuleggja og framkvæma íþróttakennslu/íþróttaþjálfun í grunnskóla/leikskóla eða hjá íþróttafélagi undir handleiðslu íþróttakennara viðkomandi skóla eða formanns viðkomandi félags. Einnig skipuleggja nemendur a.m.k. eina keppni/mót og vinna að framkvæmd þess.
    10 einingar í þjálffræði/íþróttafræði og 8 einingar í íþróttagrein
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Helstu þáttum undirbúnings fyrir kennslu/þjálfun
    • Mikilvægi félagslegra og líkamlegra þátta í íþróttaiðkun barna
    • Námsskrám eða þjálfunarmarkmiðum sem vinnuveitandi setur upp
    • Því að starfa sem íþróttakennari/-þjálfari
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Stjórna kennslu/æfingum fyrir börn á grunnskóla/-leikskólaaldri
    • Bregðast við óvæntum breytum sem upp geta komið við kennslu/þjálfun barna
    • Nota sér þau áhöld og hjálpartæki sem í boði eru hverju sinni
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Halda úti kennslu/þjálfun fyrir börn án aðstoðar
    • Geta skipulagt tíma/æfingar útfrá þeim reglum/markmiðum sem vinna á eftir
    • Takast á við vandamál sem upp koma þegar unnið er með hóp af börnum
    Áfanginn er verklegur og þurfa nemendur að uppfylla sína vinnuskyldu til fulls. Skila þarf öllum gögnum og verkefnum til að hægt sé að meta áfangann.