Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1465912290.41

    Þemaáfangi - val
    ÞÝSK2VA05
    39
    þýska
    Valáfangi 1
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Byggt er markviss á þeirri kunnáttu sem nemendur eru nú þegar búnir að tileinka sér. Nemendur eru áfram þjálfaðir í færnisþáttunum hlustun, tal, lesskilningi og ritun. Orðaforði og munnlega tjáning verður aukin, meira áhersla er lögð á rétta málnotkun og setningafræði. Viðfangsefni áfangans eru mismunandi og taka m.a. mið af áhugasviðum nemendanna.
    ÞÝSK1CC05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • þýska málkerfinu til markvissrar notkunar, bæði skriflega og munnlega
    • grundvallarþáttum þýskrar málfræði
    • mismunandi lestraraðferðum eftir tilgangi lesturs
    • viðfangsefni sem tengist áhugasviði viðkomandi
    • notkun helstu hjálpargagna, s.s. orðabókum, þýðingarvélum og uppsláttarritum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skilja talað daglegt mál
    • lesa fjölbreyttar gerðir texta
    • afla sér hagnýtra upplýsinga um viðfangsefni sem hann hefur áhuga á
    • tjá sig skýrt í ræðu og riti um málefni sem hann hefur kynnt sér
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • tjá sig munnlega og skriflega um ýmis efni sem hann hefur áhuga á
    • skilja talað mál
    • skilja meginatriði mismunandi texta og geta unnið hagnýtar upplýsingar úr þeim
    • nota undirstöðuatriði þýskrar málfræði
    • miðla þekkingu, skoðunum og kunnáttu sem hann tileinkaði sér í áfanganum
    • auka meðvitund um eigin færni í tungumálinu og eigin leiðir til að tileinka sér málið
    Í áfanganum er símat og því mikilvægt að nemendur vinni jafnt og þétt yfir alla önnina. Námsmatið tekur mið af verkefnum hverju sinni.