Bókmenntastefnur, skáld, lestur og skapandi skrif: Í áfanganum er lögð áhersla á tengsl máls, bókmennta og þjóðfélags frá siðaskiptum fram að aldamótunum 1900. Vakin skal athygli á því hvernig málfar íslenskra bókmennta og bókmenntirnar sjálfar spegla þjóðfélagsaðstæður og menningarlíf, tíðaranda, strauma og stefnur á tímum siðaskipta, lærdómsaldar, upplýsingar, rómantíkur og raunsæis. Lesnir verða fjölbreyttir textar og nemendur fá tækifæri til að tjá sig í ræðu og riti um einstök verk og höfunda þeirra sem lýkur með bókmennta-og heimildaritgerð. Skapandi skrif blandast inn í viðfangsefni áfangans með tilliti til málfræði, stafsetningar, orðræðu og að ganga vel frá texta.
ÍSLE3FO05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
öllum helstu bókmenntahugtökum
mismunandi tegundum bókmennta
tímabilum í íslenskum bókmenntum fyrri alda
helstu bókmenntastefnum frá 1550 til 19. aldar
höfuðverkum Hallgríms Péturssonar
boðskap upplýsingarmanna með áherslu á Eggert Ólafsson
áhrifum rómantíkur með áherslu á Jónas Hallgrímsson
verkum höfunda 19. og 20. aldar
ritgerðasmíð og heimildavinnu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
meta það hvernig bókmenntir spegla þjóðfélagsaðstæður og menningarstrauma frá siðaskiptum fram til aldamótanna 1900
skrifa ritgerð þar sem viðeigandi aðferðafræði er beitt
lesa helstu verk íslenskrar bókmenntasögu
lesa bókmenntaverk 20. aldar
þekkja helstu skáld og höfunda tímabilsins
tileinka sér tölvutækni til verkefnaskila
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
átta sig á áhrifum erlendra menningarstrauma á íslenskar bókmenntir tímabilsins
geta greint frá helstu höfundum og verkum þeirra á tímabilinu
sýna frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
sýna þroskaða siðferðisvitund, víðsýni og sköpunarhæfni í málflutningi sínum, umfjöllun og verkum
skrifa skýran og vel uppbyggðan texta
tjá rökstudda afstöðu sína
draga saman aðalatriði, beita gagnrýninni hugsun við lestur og túlkun texta
skrifa bókmennta-og heimildaritgerð
Námsmat Í áfanganum fer fram í símati þar sem einstaklings- og hópverkefnum, könnunum, ritgerðar-og ritunarverkefnum verður dreift yfir önnina.