Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1436947172.96

    Frjálsar íþróttir
    ÍÞRG2FÍ02
    33
    íþróttagrein
    Frjálsar íþróttir
    Samþykkt af skóla
    2
    2
    Áfanginn er bóklegur, fræðilegur og verklegur. Áhersla er á tæknikennslu og að nemendur tileinki sér grunntækni sem flestra greina frjálsra íþrótta og geti jafnframt miðlað þeim til barna og byrjenda í greininni. Farið er í helstu grundvallaratriði kennslufræðinnar með það að markmiði að nemandinn læri að nýta þau til að kenna byrjendum undirstöðuatriðin í frjálsum íþróttum. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grunnfærni í sem flestum greinum frjálsra íþrótta.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • að leiðbeina börnum á mismundandi aldri í frjálsum íþróttum
    • grunntækni frjálsra íþrótta
    • skipulagi þjálfunar fyrir börn og unglinga
    • leikreglum sem gilda í greinum frjálsra íþrótta
    • helstu þjálfunaraðferðum
    • mikilvægi fjölbreyttra tækni- og leikæfinga við þjálfun frjálsra íþrótta
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • búa til tímaseðla fyrir mismunandi aldur og getu
    • beita mismunandi þjálfunaraðferðum með ákveðin markmið að leiðarljósi svo sem þol, kraft og tækni
    • stunda frjálsar íþróttir sér til heilsubótar og ánægju
    • framkvæma grunntækni sem flestra greina frjálsra íþrótta
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • geta þjálfað yngri iðkendur og byrjendur í frjálsum íþróttum
    • geta útbúið tímaseðla sem hæfa getu yngri iðkenda og byrjenda í greininni
    • geta kennt börnum rétta grunntækni í sem flestum greinum frjálsra íþrótta
    • geta beitt fjölbreyttum aðferðum við þjálfun frjálsra íþrótta
    Í áfanganum er símat sem nær yfir alla önnina. Virkni, þátttaka og mæting er metin til einkunnar, auk verkefna.