Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1436351289.55

    Heimavist 1
    LÍFS1HA01
    63
    lífsleikni
    Heimavist 1
    Samþykkt af skóla
    1
    1
    Áfanginn er samvinnuverkefni kennara og nemenda á heimavist og nær hann yfir allt skólaárið. Markmiðið er að leiðbeina nemendum um að búa á heimavist. Fjallað er um nauðsyn þess að sýna tillitsemi og umburðarlyndi. Farið yfir grunnatriði þess að sjá um sig sem sjálfstæður einstaklingur sem ber ábyrgð á líðan sinni og vegferð.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • heimavistarreglum
    • grunnatriðum þrifa og húshalds
    • þeirri ábyrgð sem fylgir því að búa í heimavistarskóla og stunda þar nám
    • þeim gildum sem höfð eru í heiðri við Framhaldsskólann á Laugum
    • mikilvægi þess að taka þátt í samfélaginu, bæði í námi og leik
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • búa í nánu sambýli þar sem leikreglur lýðræðis eru ráðandi
    • setja fram gagnrýni á jákvæðan og uppbyggilegan hátt
    • taka við gagnrýni og læra af henni
    • meðtaka og sýna aukna ábyrgð sem nemandi í heimavistarskóla
    • bera sig eftir þátttöku í félagslífi skólans
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • taka þátt í skólastarfinu sem ábyrgur skólaþegn
    • vera öðrum til fyrirmyndar í umgengni við muni og menn
    • þroska og efla hæfileika og getu í námi og félagsstörfum
    • verða góður skólaþegn
    Í áfanganum er símat alla önnina. Öll verkefni, dagfar, viðvera, ábyrgð og þátttaka í starfi er metin til einkunnar.