Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1436345245.09

    Íþróttír og heilsurækt
    ÍÞRÓ2AA01
    43
    íþróttir
    almennar íþróttir A
    Samþykkt af skóla
    2
    1
    Nemendur skipuleggja sína íþróttaþjálfun/heilsurækt sjálf, setja sér markmið, gera æfingaáætlun og skipuleggja mælingar á þeim þáttum sem best eru til þess fallnir að meta árangur æfinganna. Nemendur æfa síðan eftir sinni áætlun, framkvæma mælingar og endurmeta markmiðin eftir því sem fram líður. Nemendur velja sér þá íþrótt/heilsurækt sem þeir kjósa sér. Þannig geta þeir sem stefna á keppni í einhverri íþróttagrein notað þennan áfanga til að bæta sig í sinni íþrótt og vinna þá sína æfingaráætlun í samvinnu við þjálfara sinn.
    3 einingar í íþróttum og 5 einingar í þjálffræði
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • uppsetningu æfingaáætlana
    • markmiðasetningu
    • helstu möguleikum til að meta og mæla árangur
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • útbúa æfingaáætlun fyrir sjálfan sig
    • setja sér raunhæf og mælanleg markmið
    • framkvæma mælingar til að meta árangur af sínum æfingum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skipuleggja sína eigin æfingaáætlun útfrá sínum eigin kröfum og markmiðum
    • setja sér raunhæf og mælanleg markmið og geti endurskoðað og bætt við eftir því sem við á samhliða æfingum sínum
    • mæla og meta árangur af sínum æfingum og æfingaáætlun og nýta mælingarnar til að uppfæra markmið sín og bregðast þannig við niðurstöðunum
    • bregðast við óvæntum breytingum sem geta komið upp, s.s. meiðslum o.fl.,og þannig endurskipulagt áætlanir sínar ef þess þarf
    Nemendur þurfa að fá 30 skráðar mætingar til að áfanginn teljist staðinn. Námsmatið stendur yfir alla önnina. Nemendur þurfa að skila inn æfingaáætlun yfir þá grein/hreyfingu sem þeir kjósa að stunda, setja sér raunhæf og mælanleg markmið, fylgja sinni áætlun eftir eins og kostur er og breyta henni ef upp koma óvænt og framkvæma mælingar 2 - 3 á tímabilinu til að fylgjast með árangri æfinga.