Áfanginn er að öllu leyti verklegur. Nemendur hafa frjálst val um það hvaða/hvernig íþróttir/hreyfingu þau stunda hverju sinni. Nemendur hafa val um að mæta í skipulagðan tíma í íþróttasal, fara í ræktina, í sund eða fara út að skokka/ganga.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
eigin þörfum til hreyfingar og mikilvægi hennar.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
velja sér hreyfingu/heilsurækt sem höfðar til hans sjálfs og sem hann upplifir á jákvæðan hátt.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
stunda hreyfingu/heilsurækt á jákvæðan og uppbyggilega hátt með sína eigin heilsu sem sitt helsta markmið.
Nemendur þurfa að fá 24 skráðar mætingar til að áfanginn teljist staðinn.