Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1435302920.83

    Kynning og hópefli
    BRUN1CC01
    1
    Brunnur
    Brunnur á þriðja ári
    Samþykkt af skóla
    1
    1
    Brunnur er kenndur í fyrstu viku hverrar haustannar. Viðfangsefnin eru m.a. undirbúningur og framkvæmd móttöka nýnema, hópefli, lífsstíll, upplýsingatækni, námstækni, jafnrétti, lýðræði, sjálfbærni og ferðalag.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • hvernig vel er tekið á móti nýnemum og þeir boðnir velkomnir í skólasamfélagið
    • þeim skólareglum sem í gildi eru
    • hvaða upplýsingatækni er notuð í tengslum við námið og hvernig
    • hvaða kröfur og væntingar eru gerðar til nemenda
    • mikilvægi bæði fagtíma og vinnustofa, og muninum á þeim
    • mikilvægi góðrar námstækni
    • mikilvægi heilbrigðs lífsstíls og heilbrigðra samskipta
    • hugtökunum jafnrétti, lýðræði og sjálfbærni og hvernig þau tengjast skólalífinu
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • bjóða nýja nemendur velkomna í hóp nemenda og starfsfólks FL
    • nota upplýsingatækni, m.a. Innu og Moodle
    • nýta bæði fagtíma og vinnustofur til náms
    • uppfylla þær kröfur og væntingar sem gerðar eru til hans sem einstaklings og nemanda
    • temja sér heilbrigðan lífsstíl og góð samskipti við samnemendur og starfsfólk
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • sjá um undirbúning og framkvæmd móttöku nýnema
    • ná sem bestum námslegum árangri
    • vera hæfari til að takast á við komandi verkefni
    • njóta sín sem einstaklingur í hópi samnemenda og starfsfólks
    • taka þátt í málefnalegri umræðu um málefni sem lúta að jafnrétti, lýðræði og sjálfbærni
    • verða góður skólaþegn og góð fyrirmynd
    Námsmat tekur mið af þátttöku viðkomandi í þeim verkefnum sem sett eru fram