Brunnur er kenndur í fyrstu viku hverrar haustannar. Viðfangsefnin eru m.a. móttaka nýnema, hópefli, lífsstíll, grenndarkynningar, upplýsingatækni, námstækni, jafnrétti, lýðræði og ferðalag.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hvernig vel er tekið á móti nýnemum og þeir boðnir velkomnir í skólasamfélagið
þeim skólareglum sem í gildi eru
hvaða upplýsingatækni er notuð í tengslum við námið og hvernig
hvaða kröfur og væntingar eru gerðar til nemenda
mikilvægi bæði fagtíma og vinnustofa, og muninum á þeim
mikilvægi góðrar námstækni
mikilvægi heilbrigðs lífsstíls og heilbrigðra samskipta
hugtökunum jafnrétti og lýðræði og hvernig þau tengjast skólalífinu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
bjóða nýja nemendur velkomna í hóp nemenda og starfsfólks FL
nota upplýsingatækni, m.a. Innu og Moodle
nýta bæði fagtíma og vinnustofur til náms
uppfylla þær kröfur og væntingar sem gerðar eru til hans sem einstaklings og nemanda
temja sér heilbrigðan lífsstíl og góð samskipti við samnemendur og starfsfólk
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
undirbúa og sjá um grenndarkynningu fyrir nýnema
ná sem bestum námslegum árangri
vera hæfari til að takast á við komandi verkefni
njóta sín sem einstaklingur í hópi samnemenda og starfsfólks
taka þátt í málefnalegri umræðu um málefni sem lúta að jafnrétti og lýðræði
verða góður skólaþegn
Námsmat tekur mið af þátttöku viðkomandi í þeim verkefnum sem sett eru fram