Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1435302487.98

    Kynning, aðlögun og hópefli
    BRUN1AA01
    3
    Brunnur
    Brunnur á fyrsta ári
    Samþykkt af skóla
    1
    1
    Brunnur er kenndur í fyrstu viku hverrar haustannar. Viðfangsefnin eru m.a. móttaka nýnema, hópefli, stöðumat, lífsstíll, grenndarkynningar, upplýsingatækni, námstækni og ferðalag.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • húsnæði skólans og staðháttum á svæðinu
    • starfsfólki skólans
    • þeim skólareglum sem í gildi eru
    • hvaða upplýsingatækni er notuð í tengslum við námið og hvernig
    • hvernig námið er skipulagt
    • hvaða kröfur og væntingar eru gerðar til nemenda
    • mikilvægi bæði fagtíma og vinnustofa, og muninum á þeim
    • grunnatriðum í námstækni
    • mikilvægi heilbrigðs lífsstíls og heilbrigðra samskipta
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nota upplýsingatækni, m.a. Innu og Moodle
    • nýta bæði fagtíma og vinnustofur til náms
    • uppfylla þær kröfur og væntingar sem gerðar eru til hans sem einstaklings og nemanda
    • temja sér heilbrigðan lífsstíl og góð samskipti við samnemendur og starfsfólk
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • ná sem bestum námslegum árangri
    • vera hæfari til að takast á við komandi verkefni
    • njóta sín sem einstaklingur í hópi samnemenda og starfsfólks
    • verða góður skólaþegn
    Námsmat tekur mið af þátttöku viðkomandi í þeimverkefnum sem sett eru fram