Í áfanganum er stjórnmálafræðin kynnt sem fræðigrein. Lögð er áhersla á að nemendur öðlist skilning á algengustu hugtökum sem notuð eru í fræðigreininni og læri að greina helstu hugmyndastrauma stjórnmálanna. Helstu stjórnmálastefnur eru kynntar og greindar út frá „vinstri-hægri“ kvarðanum og lagt mat á þær út frá afstöðu þeirra til breytinga og gilda. Stefnt er að því að nemendur geti lagt gagnrýnið mat á átök í stjórnmálum og að þeir geti rökstutt slíkt mat. Loks er fjallað sérstaklega um íslensk stjórnmál og stjórnmálaflokka.
FÉLA2KS05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu aðferðum og viðfangsefnum stjórnmálafræðinnar
helstu hugtökum stjórnmálafræðinnar, s.s. þjóðernisstefnu, stjórnkerfi, valdi, fullveldi, mannréttindum og lýðræði
helstu hugmyndakerfum stjórnmálanna, s.s. róttækni, frjálslyndi, íhaldsstefnu, afturhaldsstefnu, stjórnleysingjastefnu og femínisma
hvernig stjórnkerfum og stjórnmálastefnum er ætlað að leysa samfélagsleg viðfangsefni
íslenska stjórnkerfinu og þróun íslenskra stjórnmála
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
beita stjórnmálafræðilegum kenningum til að skoða samfélagsleg málefni
afla sér upplýsinga um stjórnmál, greina helstu atriði þeirra og hagnýta sér
fjalla um og bera saman kenningar
ræða um viðfangsefni stjórnmála
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
leggja sjálfstætt mat á stefnur og átakaefni í stjórnmálum
nota gagnrýna hugsun til að ræða um og mynda sér skoðanir á stjórnmálum
tjá sig skipulega og gagnrýnið um einstaka efnisþætti
beita öguðum vinnubrögðum, taka ábyrgð á eigin námi og vinna í samvinnu við aðra
taka virkan þátt í borgaralegu samfélagi
Símat er í áfanganum og lögð er áhersla á leiðsegjandi mat. Nánar er kveðið á um námsmat í kennsluáætlun og er það er í samræmi við skólanámskrá.