Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1434969248.48

    Körfuknattleikur yngri flokka
    ÍÞRG2KÖ02
    32
    íþróttagrein
    körfuknattleikur
    Samþykkt af skóla
    2
    2
    Viðfangsefni áfangans er körfuknattleikur og áfanginn er að mestu verklegur þar sem áherslan er körfuknattleikur fyrir byrjendur upp að 16 ára aldri. Í áfanganum verður farið í grunntækniatriði (knattrak, sendingar, sniðskot og stökkskot) leiksins og grunnleikfræði í vörn (maður á mann og svæði) og sókn (hindranir, “pick & role” o.fl.). Lesefni, myndbönd o.fl. tengt viðfangsefninu verður sett á moodle og nemendur vinna fjölbreytt verkefni (einstaklings, hópa, umræðuþræðir o.fl.)
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • nýtingu leikja og æfinga fyrir byrjendur og þá sem lengra eru komnir
    • mismunandi hlutverkum leikmanna í körfuknattleik
    • grunnreglum íþróttarinnar, s.s. lögleg varnarstaða, tvígrip, skref og tímamörk
    • grunntækniatriðum íþróttarinnar, s.s. knattrak, sendingar, sniðskot, stökkskot, hindranir og fráköst
    • grunnleikfræði íþróttarinnar, s.s. maður á mann vörn og svæðisvörn
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • setja upp skipulagðan tímaseðil út frá getu iðkenda og markmiði tímans
    • meta reglur íþróttarinnar við að horfa á kappleiki og dæma hjá samnemendum
    • þekkja muninn á mismunandi varnarleik í íþróttinni
    • þekkja hlutverk leikmanna og geta spilað mismunandi leikstöður
    • útfæra mismunandi krefjandi æfingar til að æfa viðfangsefnin
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • geta horft á körfuknattleik og skilið leikinn, s.s. hvað er verið að dæma, hvaða varnarleik er verið að leika og hvernig sóknarleik er verið að spila og útskýra þau kerfi sem verið er að nota
    • bera ábyrgð á því að skipuleggja og framkvæma kennslu hjá samnemendum þar sem grunnatriðin eru kennd
    • meta eigin leik og annarra og koma með hugmyndir að því hvað má bæta og hvernig
    • geta tekið þátt í umræðum um viðfangsefnin á faglegan og uppbyggilegan hátt
    Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar. Nemendur þurfa að uppfylla skilyrði um mætingu og virkni í tímum. Áfanginn er metinn út frá verkefnaskilum, mætingu, virkni, færni og áhuga.