Viðfangsefni áfangans er knattspyrna og áfanginn er að mestu verklegur þar sem áherslan er á knattspyrnu fyrir byrjendur upp að 16 ára aldri. Í áfanganum verður farið í grunntækniatriði (knattmeðferð, knattrak, sendingar, skot og gabbhreyfingar) leiksins og grunnleikfræði í vörn (1. og 2.varnarmaður) og sókn (1. og 2. sóknarmaður, þríhyrningsspil og framhjáhlaup). Lesefni, myndbönd o.fl. tengt viðfangsefninu verður sett á moodle og nemendur vinna fjölbreytt verkefni (einstaklings, hópa, umræðuþræðir o.fl.).
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
nýtingu leikja og æfinga fyrir byrjendur og þá sem lengra eru komnir
mismunandi hlutverkum leikmanna í knattspyrnu
grunnreglum íþróttarinnar, s.s. leikvöllur, leiktími, knöttur í og úr leik, leikbrot og föst leikatriði
grunntækniatriðum íþróttarinnar, s.s. knattmeðferð, knattrak, sendingar, skot og gabbhreyfingar
grunnleikfræði íþróttarinnar, s.s. 1. og 2. varnar- og sóknarmaður
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
setja upp skipulagðan tímaseðil út frá getu iðkenda og markmiði tímans
meta reglur íþróttarinnar við að horfa á kappleiki og dæma hjá samnemendum
þekkja muninn á mismunandi varnarleik í föstum leikatriðum
þekkja hlutverk leikmanna, s.s. 1. og 2. varnar- og sóknarmaður og geta spilað mismunandi leikstöður
útfæra mismunandi krefjandi æfingar til að æfa viðfangsefnin
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
geta horft á knattspyrnuleik og skilið leikinn, s.s. hvað er verið að dæma, hvaða leikaðferð er verið að spila, hvaða grunnáherslur eru í varnar- og sóknarleiknum og útskýra þau kerfi sem verið er að nota
bera ábyrgð á því að skipuleggja og framkvæma kennslu hjá samnemendum þar sem grunnatriðin eru kennd
meta eigin leik og annarra og koma með hugmyndir að því hvað má bæta og hvernig
geta tekið þátt í umræðum um viðfangsefnin á faglegan og uppbyggilegan hátt
Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar. Nemendur þurfa að uppfylla skilyrði um mætingu og virkni í tímum. Áfanginn er metinn út frá verkefnaskilum, mætingu, virkni, færni og áhuga.