Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1434968328.65

    Blak
    ÍÞRG2BL02
    30
    íþróttagrein
    blak
    Samþykkt af skóla
    2
    2
    Viðfangsefni áfangans er blak og áfanginn er að mestu verklegur þar sem áherslan er á blak fyrir byrjendur og lengra komna. Í áfanganum verður farið í gegnum öll stig krakkablaks og smassbolta auk þess að fara í gegnum æfingar fyrir lengra komna .Lesefni, myndbönd o.fl. tengt viðfangsefninu verður sett á moodle og nemendur vinna fjölbreyt verekfn i(einstaklings, hópa, umræðuþræðir o.fl.).
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • nýtingu leikja og æfinga fyrir byrjendur og þá sem lengra eru komnir
    • reglum og hugmyndafræði í krakkablaki
    • Reglum og hugmyndafræði í smassbolta
    • grunntækniatriðum íþróttarinnar, s.s.uppgjöf, fingurslagi, fleyg og smassi
    • grunnleikfræði íþróttarinnar, s.s. staðsetningum og leikkerfi
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • setja upp skipulagðan tímaseðil út frá getu iðkenda og markmiði tímans
    • nýta leiki til kennslu grunntækniatriða leiksins
    • meta reglur íþróttarinnar við að horfa á kappleiki og dæma hjá samnemendum
    • útfæra mismunandi krefjandi æfingar til að æfa viðfangsefnin
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • geta horft á blak og skilið leikinn, s.s. hvað er verið að dæma, hvaða áherslur liðin eru með í leiknum og útskýra þau atriði sem verið er að nota
    • bera ábyrgð á því að skipuleggja og framkvæma kennslu hjá samnemendum þar sem grunnatriði eru kennd
    • meta eigin leik og annarra og komið með hugmyndir að því hvað má bæta og hvernig
    • geta tekið þátt í um ræðum um viðfangsefnin á faglegan og uppbyggilegan hátt
    Í áfanganum er viðhaftsímatalla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar. Nemendur þurfa að uppfylla skilyrði um mætingu og virkni í tímum. Áfanginn er metinn út frá verkefnaskilum, mætingu, virkni, færni og áhuga.