Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1434967889.98

    Badminton
    ÍÞRG2BA02
    31
    íþróttagrein
    badminton
    Samþykkt af skóla
    2
    2
    Viðfangsefni áfangans er badminton (hnit) og áfanginn er að mestu verklegur þar sem áherslan er badminton fyrir byrjendur og lengra komna. Í áfanganum verður farið í grunntækniatriði (uppgjöf, stutt og löng slög og bakhandarslög) leiksins. Lesefni, myndbönd o.fl. tengt viðfangsefninu verður sett á moodle og nemendur vinna fjölbreytt verekfni (einstaklings, hópa, umræðuþræðir o.fl.).
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • nýtingu leikja og æfinga fyrir byrjendur og þá sem lengra eru komnir
    • grunnreglum íþróttarinnar, s.s. muninum á einliða- og tvíliða-/tvennarleik
    • grunntækniatriðum íþróttarinnar, s.s. uppgjöf, stutt og löng slög og bakhandarslag
    • grunnleikfræði íþróttarinnar, s.s. staðsetningar og samvinna í tvíliða- og tvenndarleik
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • setja upp skipulagðan tímaseðil út frá getu iðkenda og markmiði tímans
    • nýta leiki til kennslu grunntækniatriða leiksins
    • meta reglur íþróttarinnar við að horfa á kappleiki og dæma hjá samnemendum
    • útfæra mismunandi krefjandi æfingar til að æfa viðfangsefnin
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • geta horft á badminton og skilið leikinn, s.s. hvað er verið að dæma, hvaða áherslur hvor leikmaður eða hvort par er með í leiknum og útskýra þau atriði sem verið er að nota
    • bera ábyrgð á því að skipuleggja og framkvæma kennslu hjá samnemendum þar sem grunnatriði eru kennd
    • meta eigin leik og annarra og koma með hugmyndir að því hvað má bæta og hvernig
    • geta tekið þátt í umræðum um viðfangsefnin á faglegan og uppbyggilegan hátt
    Í áfanganum er viðhaft símat alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar. Nemendur þurfa að uppfylla skilyrði um mætingu og virkni í tímum. Áfanginn er metinn út frá verkefnaskilum, mætingu, virkni, færni og áhuga.