Verkefnadrifinn áfangi þar sem nemendur skipuleggja æfingaáætlun, setja fram markmið og framkvæma mælingar. Nemendur vinna síðan eftir þessum áætlunum og leggja mat á þær, bæði samhliða vinnunni og í lok hennar.
ÞJÁL2ÞJ05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Samspili milli þjálfunar og æfinga
Gerð áætlunar til skemmri og lengri tíma og æfingatímabila
Öllum helstu aðferðum til að meta og mæla árangur þjálfunar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Útbúa æfingaáætlun í samstarfi við íþróttamann
Setja raunhæf og hvetjandi markmið til skemmri og lengri tíma
Vinna eftir æfingaáætlun sem unnin er af þjálfara
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Útbúa heildaráætlun fyrir íþróttamann með skýr markmið
Vinna með íþróttamönnum við að hámarka áhrif þjálfunar með því að meta og mæla árangur æfinga
Vinna eftir æfingaáætlun og lagt mat á gæði hennar og verið gagnrýnin á vinnu annarra þjálfara
Geta rökrætt og tekið þátt í um ræðum um þjálfun íþróttamanna
Í áfanganum er síma talla önnina. Skilyrði er að gera og skila öllum verkefnum til að áfanginn sé metinn.