Það kom upp villa
senda inn
Áfangi
Áfangi Nánari upplýsingar
þjálffræði/íþróttafræði
Þjálfunarformin og aðferðir innan þeirra, skipulagning þjálfunar til lengri og skemmri tíma, siðfræði íþrótta og próf/mælingar íþróttamanna.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- helstu þjálfunarformunum og þeim aðferðum sem finnast innan þeirra
- mikilvægi þess að skipuleggja þjálfun bæði til lengri og skemmri tíma
- þeim siðfræðilegu sjónarmiðum sem gilda í íþróttum
- mikilvægi þess að prófa/mæla íþróttamenn
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- beita þeim aðferðum sem finnast innan hvers þjálfunarforms
- setja upp þjálfunaráætlun til lengri og skemmri tíma
- sjá kosti og galla þeirra siðfræðilegu atriði sem upp geta komið í íþróttum
- velja rétt próf fyrir íþróttamenn út frá því hvað á að meta
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- meta hvaða aðferð innan þjálfunarformanna er hentugust hverju sinni
- skipuleggja þjálfun einstaklings og hóps til lengri og skemmri tíma
- meta og taka rétta ákvörðun út frá siðfræðilegum sjónarmiðum íþrótta
- framkvæma hin ýmsu próf/mælingar rétt
Í áfanganum er viðhaft símat alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega.