Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1434966188.05

    Þjálfun barna og unglinga
    ÞJÁL2BU05
    1
    þjálffræði/íþróttafræði
    Barna og unglingaþjálfun
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Hlutverk og aðferðir í þjálfun/kennslu, þroski barna og unglinga, uppbygging á tímaseðli, stefnuyfirlýsingar íþrótthreyfingarinnar, raddbeiting og tímaseðlagerð
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • þeim grunnatriðum sem gilda við þjálfun barna og unglinga, s.s. mikilvægi reglna, klæðaburðar, raddbeitingar og hegðunar
    • hlutverkum og aðferðum í íþróttaþjálfun barna og unglinga
    • stefnuyfirlýsingum sem eru í gildi innan íþróttahreyfingarinnar í þjálfun barna og unglinga
    • mikilvægi góðrar uppbyggingar á tímaseðli
    • grunnatriðunum í þroska barna og unglinga
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • beita þeim aðferðum sem notaðar eru í þjálfun barna og unglinga
    • gera tímaseðil út frá þjálfunarþætti og markmiðum tímans
    • meta hvaða leikir og æfingar henta viðkomandi þroskastigi iðkendanna
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • meta þjálfun annarra
    • gera tímaseðil út frá þroskastigi iðkandanna
    Í áfanganum er viðhaft leiðsegjandi mat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega.