Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1434701811.01

    Hagstjórn, atvinnuvegir og umhverfismál
    HAGF2HA05
    20
    hagfræði
    Hagfræði, almenn
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Meginefni áfangans er hagstjórn, efnahagsmál og íslensk atvinnuvegalýsing. Efnisþættir sem teknir verða fyrir í áfanganum eru: • Hagfræði. Hagfræðikenningar. Framleiðsla, sérhæfing, viðskipti, framboð og eftirspurn. • Lýðfræði. Fólksfjölgun og auðlindanotkun. Búseta og fólksflutningar. Þéttbýlismyndun. • Hagstjórn. Hlutverk hins opinbera. Hagvöxtur, verðbólga og atvinnuleysi. • Bankar. Hlutverk banka. Vextir og verðtrygging. • Íslenskir atvinnuvegir: Athuguð er dreifing vöru og þjónustu, landfræðileg einkenni vaxtarsvæða, forsendur auðlindanýtingar og breytinga á atvinnuháttum. Athuguð eru einkenni vaxtarsvæða, forsendur auðlindanýtingar og breytingar á atvinnuháttum. Meginviðfangsefni hagfræðinnar eru kynnt. Farið er á aðgengilegan hátt yfir helstu hugtök í hagfræði, hvernig þau eru notuð og komið inn á sögulegt samhengi hagfræðikenninga. Nemendum er gert kleift að átta sig á hugtökum sem heyrast daglega í þjóðmálaumræðunni og hafa áhrif á efnahag og aðstæður okkar allra.
    FJÁR1FD02 og STÆR2TÖ02
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Hagfræði sem fræðigrein, meginviðfangsefnum hennar og grundvallarspurningum
    • Auðlindanotkun, búsetu og fólksflutningum
    • Lögmálum markaðarins, framboði og eftirspurn, meginþáttum verðmyndunar á markaði
    • Helstu aðilum og launamyndun á vinnumarkaði
    • Umsvifum hins opinbera í efnahagslífi og markmiðum með hagstjórn
    • Bankaviðskiptum, hlutverki seðlabanka
    • Vandamálum í efnahagslífinu; verðbólgu, atvinnuleysi og erlendum skuldum
    • Íslenskum atvinnuvegum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Nota hugtök sem tengjast námsefninu við þátttöku í þjóðmálaumræðu
    • Leggja mat á upplýsingar um efnahagsmál og hagstjórn
    • Reikna jafnvægi á milli framboðs og eftirspurnar
    • Greina stöðu og þróun íslenskra atvinnuvega
    • Útskýra hlutverk banka
    • Leita sér frekari upplýsinga og heimilda við umfjöllun um námsefnið
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu hagfræðilegra hugmynda og viðfangsefna.
    • Velja þær aðferðir sem við eiga hverju sinni til að leysa verkefni og beita þeim rétt.
    • Beita gagnrýnni hugsun og skipulögðum aðferðum við að leysa hagfræðileg verkefni
    • Leysa margvísleg hagfræðileg viðfangsefni í námi og daglegu lífi.
    Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Áfanginn er verkefnadrifin og öll verkefni gilda til einkunnar.