Borgir, verslun, fatnaður, hátíðir, ferðalög ofl. Byggt er markvisst á þeirri kunnáttu sem nemandinn er nú þegar búinn að tileinka sér.
Nemendur eru áfram þjálfaðir markvisst í færniþáttunum hlustun, tali, lesskilningi og ritun. Orðaforði er aukinn og ný málfræðiatriði þjálfuð. Textar verða smá saman lengri og þyngri og orðaforðinn eykst. Einnig verður fjallað um öll helstu áheyrsluþætti málfræðinnar.
ÞÝSK1BB05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Orðaforða sem er nauðsynlegur til að ná markmiðum áfangans og byggist einnig á undanförnum áföngum
grundvallarþáttum þýskrar málfræði
menningu, siðum og áhugaverðum stöðum þýskumælandi landa
ólíkum textagerðum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skilja talað mál um efni sem fjallað er um í áfanganum
lesa lengri og þyngri texta sem innihalda fjölbreytan, algengan orðaforða og vinna úr þeim með mismunandi hætti
afla sér hagnýtra upplýsinga
taka þátt í samtölum um efni áfangans, áhugamál, þýskumælandi lönd o.f.
nota orðabækur, málfæðibækur og önnur hjálpargögn
tjá sig munnlega og skriflega um liðinn atburði, geta sagt frá reynslu og skoðum.
skrifa mismunandi texta og fjölbreytan orðaforði og setningagerð
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
tjá sig munnlega og skriflega um umfjöllunarefni áfangans
skilja talað mál um kunnulegt efni
skilja meginatriði lengri og flóknari texta og geta unnið upplýsingar úr þeim
nota þýska málfræði á sem réttastan hátt
miðla þekkingu og skoðunum á sem fjölbreyttustu efni
skrifa texta um kunnlegt efni, persónlega reynslu, áhugamál o.f.
vinna með efni úr smásögum, kvikmyndum og blaðagreinum
tileinka sér jákvætt viðhorf til þýskunámsins og öðlast trú á eigin getu
Námsmat er fjölbreytt og sífellt, bæði skriflegt og munnlegt, kaflapróf og verkefnaskil