Starfsheiti, heilsa, matur, ferðalög ofl. Í áfanganum er byggt ofan á þá þekkingu sem nemandi öðlaðist í fyrsta áfanganum. Orðaforði og málfræði verður rifjað upp. Nemendur eru áfram þjálfaðir í færniþáttunum hlustun, tali, lesskilningi og ritun, Orðaforði er aukinn og ný málfræðiatriði þjálfuð. Einnig læra nemendur um menningu, siði og staðhætti þýskumælandi landa.
ÞÝSK1AA05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
orðaforða sem er nauðsynlegur til að ná markmiðum áfangans
grundvallarþáttum þýskrar málfræði og þeim málfræði sem fjallað er um í áfanganum
menningu, siðum og áhugaverðum stöðum þýskumælandi landa
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skilja talað mál um kunnulegt og afmarkað efni sem fjallað er um í áfanganum
skilja einföld munnleg og skrifleg fyrirmæli
lesa lengri og þyngri texta sem innihalda algengan orðaforða og vinna úr þeim á mismunandi hátt
afla sér hagnýtra upplýsinga
taka þátt í einföldum samtölum sem tengjast efni áfangans
nota orðabækur og málfæðibækur
tjá sig munnlega og skriflega um liðinn atburði, segja frá reynslu og skoðum
spyrja og svara spurningum um liðin atburð
skrifa einfaldan texta um efni sem fjallað er um
skrifa persónlegt bréf, texta eða smásögur
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
tjá sig munnlega og skriflega á einfaldan hátt um efni sem hann lærði í áfanganum
skilja talað mál um kunnulegt efni
skilja meginatriði lengra texta
nota undirstöðuatriði þýskrar málfræði
miðla þekkingu, skoðunum og kunnáttu sem hann tileinkaði sér í áfanganum
skrifa einfalda texta um kunnlegt efni
tileinka sér jákvætt viðhorf til þýskunámsins og öðlast trú á eigin getu
afla sér upplýsinga um ákveðin efni á þýsku
Námsmat er fjölbreytt og sífellt, bæði skriflegt og munnlegt, kaflapróf og verkefnaskil