Fjölskyldan, kynning, matur, heimili ofl. Þetta er byrjunaráfangi í þýsku og megináhersla er lögð á að nemendur tileinki sér undirstöðuatriði tungumálsins, læri góð vinnubrögð og fái innsýn í menningu og staðhætti þýskumælandi landa. Nemendur læra að kynna sig og aðra, tala um áhugamál og segja frá fjölskyldu og nánasta umhverfi í nútíð, bæði í ræðu og riti.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Orðaforða sem er nauðsynlegur til að ná markmiðum áfangans
Grundvallarþáttum þýskrar málfræði
þýskumælandi löndum og fengið innsýn í menningu, samskiptavenjur og siði þjóðanna
Skilja talað mál um kunnulegt og afmarkað efni sem fjallað er um í áfanganum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Skilja tala mál um kunnulegt og afmarkað efni sem fjallað er um í áfanganum
Lesa og skilja einfalda texta sem innihalda algengan orðaforða sem tengist einstaklingnum, umhverfi hans og áhugamálum
Taka þátt í einföldum samræðum um efni sem hann þekkir eða hefur áhuga á
Segja á einfaldan hátt frá sjálfum sér, fjölskyldu og atburðum daglegs lífs
Skrifa stuttan einfaldan texta um sjálfan sig, fjölskyldu og atburði daglegs lífs
Fylla út einföld eyðublöð o.fl.
Skrifa stutta texta t.d. póstkort, bréf o.f.
Afla sér hagnýtra upplýsinga t.d. um lestarferðir, opnunartíma, skoðunarverða staði o.fl.
Fylgja einföldum fyrirmælum og skilja kveðjur og kurteisisávörp
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Tjá sig munnlega og skriflega á einfaldan hátt um efni sem hann lærði í áfanganum
Skilja einfalt talað mál
skilja meginatriði einfaldra texta
Nota undirstöðuatriði þýskrar málfræði
Tileinka sér jákvætt viðhorf til þýskunámsins og trú á eigin getu
Skrifa stutta texta um kunnulegt efni
Námsmat er fjölbreytt og sífellt, bæði skriflegt og munnlegt, kaflapróf og verkefnaskil