Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1434635239.77

    Afbrigðasálfræði
    SÁLF3AB05
    43
    sálfræði
    afbrigðasálfræði
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Áfanginn fjallar um geðheilsu og geðræn vandamál. Lögð er áhersla á líkammlega og andlega þætti í tengslum við geðheilbrigði og geðraskanir. Ítarlega er fjallað um einkenni streitu, einkenni hennar, áhrif á heilsu og streituþol. Farið er í kenningar um eiginleika persónuleikans, sálarlífið, áfbrigðasálfræði, meðferðarform, stress, fælni, geðklofa og flokkunarkerfi geðrænna vandamál. Meginmarkmið er að nemendur öðlist skilning á því sem tengist almennri geðheilsu og eðli geðraskana.
    SÁLF2AA05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • geðheilsu og geðröskunum
    • helstu hugtökum og kenningum afbrigðilegrar sálfræði
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • að þekkja algengustu flokkun geðrænna vandamála, orsakir þeirra, einkenni og meðferð
    • þekkja einkenni streitu og leiðir til að vinna gegn henni
    • kunna skil á grundvallaratriðum varðandi sálrænan afbrigðileika
    • beita almennum og sértækum vinnubrögðum og aðferðum
    • afla upplýsinga og setja í fræðilegt samhengi
    • miðla fræðilegu efni skilmerkilega í ræðu og riti
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • öðlast innsýn í það hvernig viðhorf til geðsjúkra hefur breyst í gegnum tíðina
    • benda á hugsanlegar meðferðaleiðir
    • vinna úr rannsóknargögnum
    • beita skapandi hugsun við lausnamiðað nám
    • geta tekið þátt í umræðum um málefni sem tengjast viðfangsefninu
    • skrifa heimildaritgerð um geðsjúkdóm og geðheilbrigði
    Unnið er með símat þar sem verkefni, heimildaritgerð og kannanir eru til einkunnar.