Í áfanganum er sálfræði og uppeldisfræði kynnt sem fræðigrein. Fjallað verður um hugmyndafræði og uppeldisaðferðir þar sem þroskasálfræðin er í aðalhlutverki í þessum áfanga. Fjallað verður um þroskaferil mannsins frá getnaði til grafar þar sem meðganga og uppeldisaðferðir á bernskuárum fá aukið vægi. Nemendur munu kynnast bernskunni í ljósi sögunnar og hvernig hún hefur breyst með tilliti til nútímalegra uppeldisaðferða og fjölskylduaðstæðna.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
þróun innan sálfræði og uppeldisfræði og tengslum við aðrar fræðigreinar
þroskaferli mannsins frá getnaði til grafar
helstu uppeldisaðferðum og fjölskylduaðstæðum
hagnýtu gildi sál- og uppeldisfræðinnar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
afla sér vitneskju um sögu sálfræðinnar og uppeldisfræðinnar í tengslum við aðrar fræðigreinar
greina þroskaferil mannsins með tilliti til uppeldisaðferða og fjölskylduaðstæðna
meta og greina lestexta innan fræðigreinarinnar
taka þátt í umræðum og að beita þeim vinnuaðferðum sem krafist er hverju sinni
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
beita sjálfstæði, virkni og sköpunarmætti í vinnubrögðum
hagnýta sér þá þekkingu og leikni sem hann býr yfir
draga ályktanir, rökstyðja og beita gagnrýninni hugsun
vinna sjálfstætt og í samvinnu við aðra, við að skipuleggja verkefnavinnu, leita upplýsinga, vinna úr gögnum og kynna niðurstöður skriflega og/eða munnlega
Í áfanganum er unnið með símat þar sem öll verkefni og kaflapróf gilda til einkunnar.