Íslendingasögur, sagnaritun og bókmenntir fornalda: Í áfanganum kynnast nemendur fornum fræðiritum, fornum kveðskap og því helsta í sagnaritun. Nemendur lesa eina fornsögu og fjalla um hana bæði munnlega og skriflega, túlka hana og bera saman við eigin reynslu og hugmyndaheim. Þeir fræðast einnig um orðaforða, beygingarkerfi og setningagerð fornmáls í tengslum við þá texta sem lesnir eru. Nemendur fá þjálfun í lestri fornbókmennta fyrir land og þjóð og að tileinka sér bókmenntaeinkenni fornalda.
ÍSLE2MÁ04
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
fjölbreytni íslenskra fornbókmennta, bæði að efni og formi
siðferðislegum boðskap í bókmenntum
þekki sögu helstu eddukvæða
bókmenntum sem veita leiðbeiningar um daglegt líf
mikilvægi ritunar og lestur fornbókmennta
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa texta frá ólíkum tímum
lesa Íslendingasögu og skilja samtíma þeirra
lesa Hávamál og tileinka sér þann siðferðislega boðskap
þekkja hina ýmsu bragarhætti
þekkja hin ýmsu hetjukvæði eddu
skilja mikilvægi sagnaritunar og bókagerðar frá upphafi
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
meta mikilvægi bókmennta fyrir sjálfsmynd þjóðarinnar
skilja hvernig bókmenntaarfurinn hefur mótað Íslendinga, allt frá fornbókmenntum til okkar daga
fjalla um trúarlegar bókmenntir, bæði heiðnar og kristnar
hafa skilning á frásögnum af hetjum úr Íslendingasögum
auka skilning á textagreiningu, efla málkennd og þjálfa málnotkun
lesa sér til um hvernig nútímahöfundar vinna úr bókmenntahefðinni
þekkja helstu sérkenni konungasagna, biskupasagna, Íslendingasagna, Íslendingaþátta, fornaldarsagna Norðurlanda og riddarasagna
vera þátttakandi í umræðum um íslenskar bókmenntir frá fornu fari til siðaskipta
beita góðu og blæbrigðaríku máli í ræðu og riti
kynna sér rannsóknir fræðimanna á bókmenntaarfinum
Námsmat Í áfanganum fer fram í símati þar sem einstaklings- og hópverkefnum verður dreift yfir önnina. Námsmat byggir á þekkingu, skilningi og greiningu á íslenskum fornbókmenntum, hugmyndafræði þeirra og málfarslegum einkennum.