Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1434498493.67

    Alþjóðasaga
    SAGA3AL05
    54
    saga
    Alþjóðasaga
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Fjallað er um upphaf og sögu Íslam, einkenni þeirra trúarbragða, Kórarinn og stöðu kvenna í Miðausturlöndum í nútímanum. Þá er fjallað um upphaf nýtíma þjóðríkja í þessum heimshluta og með hvaða hætti þau urðu til í lok fyrri heimstyrjaldar. Kannaðar eru orsakir fyrir deilum Ísraela og Palestínumanna sem hafa staðið svo til óslitið alla 20. öldina. Kannaðar eru ástæður fyrir uppgangi ýmissa hópa (oft skilgreindir sem herskáir hópar) í Miðausturlöndum á síðari hluta 20. aldar sem hafa haft það m.a. á stefnuskrá sinni að íslamvæða þau samfélög þar sem þeir hafa komist til valda, s.s. Afganistan og Íran. Hver eru viðhorf þessara ríkja til vestrænna ríkja, einkum Bandaríkjanna? Skoðaðar eru í lokin helstu ástæður fyrir árásum á Bandaríkin 11. september 2001 og svar þeirra við þeim.
    SAGA3ÍM05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Stöðu heimsmála í dag og þróun þeirra síðustu ár
    • Samspili trúarbragða og stjórnmála
    • Orsökum nokkurra helstu deiluefna milli þjóða og þjóðarbrota í nútímanum
    • Starfsemi og birtingarmynd ýmissa herskárra hópa samtímans
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Greina betur stöðu heimsmála og mynda sér skoðanir á þeim
    • Meta gildi og kunna að bera saman margvíslegar heimildir
    • Miðla sögunni (þekkingu) til annarra á sjálfstæðan og fjölbreytilegan hátt
    • Nýta sér fjölbreytilegar heimildir og birtingarform þeirra, s.s kennslubækur, handbækur, fræðirit (m.a. tímarit), myndefni og internetið
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Afmarka söguleg málefni, geta greint meginþætti og álitamál, leita eftir mismunandi sjónarhornum og skoðunum, lýsa málefnum og gefa sitt álit
    • Taka þátt í rökræðum um mikilvæg málefni út frá sögulegu samhengi
    • Greina orsakir og afleiðingar (stundum hugsanlegar) þeirra helstu atburða sem skoðaðir verða
    Áfanginn er próflaus og því er gerð sú krafa til nemenda, að þeir gæti þess, að koma vel undirbúnir í kennslustundir og skili verkefnum sínum á réttum tíma.