Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1434497940.2

    Íslands- og mannkynssaga frá upplýsingu til nútíma
    SAGA3ÍM05
    53
    saga
    íslands- og mannkynssaga
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Fjallað er um ýmsa þætti Íslands – og mannkynssögunnar á 19. og 20 öld. Skoðaðar eru byltingar og stríðstímar, stormasöm ár í heiminum, sjálfstæðisbaráttu, íslenskt samfélag á 19. og 20 öld og góðæri og velgengi frjálsra þjóða í heiminum.
    SAGA2ÍM05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Stöðu heimssmála frá upplýsingartíma til nútíma og þróun þeirra á tímabilinu
    • Þróun og framgangi sjálfstæðisbaráttu Íslendinga á 19. öld
    • Orsökum heimsstyrjaldanna tveggja, framgang og afleiðingar, einkum fyrir Ísland
    • Þróun og framgangi íslensks samfélags á 20. öld (atvinna, menning, stjórnmál)
    • Sögulegu samhengi ýmissa mikilvægra mála samtímans
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Greina stöðu heimssmála á hverjum tíma út frá sögulegu samhengi
    • Meta gildi og áreiðanleika mismunandi heimilda
    • Miðla sögunni á fjölbreytilegan og ábyrgan hátt
    • Nýta sér hin ýmsu birtingarform sögunnar, s.s. kennslubækur, handbækur, fræðirit, myndefni og internet.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Afmarka söguleg málefni, geta greint meginþætti og álitamál, leita eftir mismunandi sjónarhornum, lýsa málefnum og gefa álit sitt.
    • Skoða stöðu Íslands í samhengi við sögu Norðurlanda, Evrópu og heimsins.
    • Taka þátt í rökræðum um mikilvæg álitaefni út frá sögulegu samhengi.
    • Greina orsakir og afleiðingar helstu atburða á 19. og 20. öld og sjá söguna þannig í skýrara ljósi.
    Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Öll verkefni eru metin til einkunnar og því er mikilvægt að nemendur stundi námið jafnt og þétt.