Íslands- og mannkynssaga frá upphafi til upplýsingar
SAGA2ÍM05
73
saga
íslands- og mannkynssaga
Samþykkt af skóla
2
5
Fjallað er um upphaf siðmenningar, Grikki hina fornu og Rómverja. Á miðaldatíma eru skoðuð þjóðflutningaríki, Evrópa á síðmiðöldum og aðrir heimshlutar. Saga Íslands frá landnámi, víkingatíminn, kristin trú efling konungsvalds og mannlíf á Íslandi. Þá er farið yfir endurreisnartímann, siðaskipti, landafundi og daglegt líf á þeim tíma. Hvernig var lífið í sveit og borg, stjórnarhættir og það tímabil sem kennt er við upplýsingaröld.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Mismunandi tímaskeiðum Íslands – og mannkynssögunnar
Ýmsum sviðum sögunnar, s.s. einstaklingi og samfélagsi, menningu og hugarfari, hversdagslífi og stjórnmálum, tækni og vísindum svo eitthvað sé nefnt.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Afmarka hin ýmsu skeið sögunnar og málefni, geta greint meginþætti og álitamál, leitað eftir mismunandi sjónarhornum, lýst málum og viðfangsefnum sínum og gefið álit.
Að leita samhengis og tengsla milli tímabila, svæða og sviða
Í að nýta sér hin margvíslegu birtingarform sögunnar, s.s. kennslubækur, handbækur, fræðirit, myndefni og internet
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Sjá sögu Íslands í samhengi við sögu Norðurlanda, Evrópu og heimsins
Gera sér grein fyrir gildi og afstæði sögulegra frásagna og skýringa
Fá aukinn áhuga á fjölþættri sögu
Sjá nútímann í skýrara ljósi
Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Öll verkefni eru metin til einkunnar og því er mikilvægt að nemendur stundi námið jafnt og þétt.