Í áfanganum fer fram kynning á tveimur af fjórum grunngreinum náttúruvísindanna, efnafræði og eðlisfræði. Áhersla er lögð á að nemendur kynnist greinunum og átti sig á því hvar og hvernig þær skipta þá máli í daglegu lífi. Einnig er lögð áhersla á að nemendur kynnist sögu þessara greina og hvernig þær hafa haft áhrif á mannkynssöguna.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Efnahvörfum, uppbyggingu frumefna og lotukerfinu
Hreyfingu eftir beinni línu, hröðun, krafti, vinnu og afli
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Stilla efnajöfnur, sýna rafeindaskipan frumefna og gefa efnum og efnasamböndum nöfn
Reikna út hraða, hröðun og krafta sem verka á hluti, vinnu og afl
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
taka þátt í samfélagsumræðu um efni tengd efna- og eðlisfræði
Námsmat fer fram með símati; tímakönnunum, verkefnaskilum og verklegum æfingum