Í áfanganum öðlast nemendur skilning á lofthjúpi jarðar og lagskiptingu hans.Tilurð mismunandi veðrakerfa og þróun þeirra er skoðuð ásamt samspili þeirra við landslag. Einnig verða veðurkort skoðuð og vefsíður með veðurspám. Hafstraumar jarðarinnar ásamt samspili þeirra við verðurfar og veðrakerfa er einnig tekið fyrir í áfanganum.Veðurfarsbreytingar og hnattræn hlýnun er til umfjöllunar þar sem sveiflur af bæði náttúrulegum og mannavöldum eru skoðaðar ásamt langtíma þróun veðurfars á jörðinni.
JARÐ2AJ05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Eðliseiginleikum, efnasamsetningu og lagskiptingu lofthjúps jarðar
mismunandi skýjagerðum og flokkun þeirra
vindakerfi jarðar
loftslagsbeltum jarðar
tengslum veðurfars og gróðurbelta og tengslum veðurfars og landslags
ýmsum veðurfarslegum fyrirbærum
hafstraumum og blöndun sjávar með láréttum og lóðréttum hafstraumum
myndun hafíss
hringrásum efna í lofthjúpi og hafi
loftmengun og breytingum á loftslagi
loftslagsbreytingum af manna völdum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
greina ský og nýta skýjamyndanir til að segja til um veður
greina veðurkort
fjalla um veðurlag út frá stöðu veðrakerfa á nánd við Ísland
fjalla um ástand sjávar og mikilvægi þess fyrir lífríkið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
leggja mat á veðurfræðilegar upplýsingar sem nýtast í daglegu lífi
meta mögulegar veðurfarslegar ógnir
leggja mat á upplýsingar um veðurfyrirbæri
sjá samhengi og áhrif lifnaðarhátta á loftslag
meta þau áhrif sem hafið hefur á daglegt líf okkar, t.d. hvað varðar veðurfar, sjávarföll og strauma
meta mögulegar veðurfarslegar ógnir
leggja rökstutt mat á umfjöllun um loftslagsbreytingar á jörðinni og þær leiðir sem eru vænlegar til að sporna við þeim
Námsmat fer fram með fjölbreyttum og sífelldum hætti þ.a. öll verkefni nemenda gilda til einkunnar.