Í áfanganum er fjallað um innræn öfl, þ.e. flekarek og heita reiti, jarðskjálfta og brotalínur, kviku og storkuberg og eldvirkni. Einnig verður fengist við útræn öfl; veðrun, rof og setmyndun, jökla og vatnsföll.
RAUN2NÁ04
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
notagildi jarðfræðiþekkingar á Íslandi
myndun bergs og mismunandi kviku
mismunandi gerðum vatnsfalla og einkennum þeirra, s.s. rennslisháttum, landmótun og vatnasvæðum
jöklum og skýrt myndun þeirra, gerð og hreyfingar
meginatriðum mismunandi aðferða sem notaðar eru við jarðfræði- og jarðeðlisfræðilegar rannsóknir
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
útskýra myndun mismunandi landsvæða af völdum innrænna afla, s.s. landreki, eldvirkni, jarðskjálftum og jarðhita
fjalla um landmótun sem stjórnast af útrænum öflum, s.s. vegna frostverkana, vatnsfalla, sjávar, jökla og vinds
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
geti beitt algengustu hugtökum og heitum í jarðfræði í umfjöllun sinni um myndun og gerð náttúrufyrirbæra
greina helstu steindir og bergtegundir
greina helstu gerðir eldstöðva og skýrt mismunandi eldvirkni þeirra
móta sér afstöðu og taka þátt í samfélagsumræðu tengdri jarðfræðilegum málefnum, s.s. varðandi nýtingu náttúruauðlinda og umhverfisáhrif
Námsmat fer fram með símati; tímakönnunum, verkefnaskilum og verklegum æfingum