Viðfangsefni áfangans eru vistkerfi, vistkerfi á Íslandi, vistkerfisvöktun, stofnstærðarmat og smádýrafána. Áfanginn á að veita nemendum greinargóða yfirsýn yfir vistfræðina sem fræðigrein, aðferðafræði hennar og viðfangsefni. Lögð er áhersla á sérstöðu Íslands, helstu gerðir vistkerfa sem hér finnast í sjó jafnt sem á landi og vistfræðilegar rannsóknir hér á landi. Gert er ráð fyrir fjölbreyttri verkefnavinnu nemenda í áfanganum sem meðal annars krefst vettvangsferða, upplýsingaöflunar og framsetningar ýmissa smærri og stærri verkefna.
RAUN2NÁ04
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
sögu vistfræðinnar og tengslum við aðrar greinar
helstu hugtökum vistfræðinnar
vistfræðirannsóknum
uppbyggingu og mótun vistkerfa
sérstöðu Íslands
helstu hugtökum stofnvistfræði
líffræðilegum fjölbreytileika
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa vistfræðilegar upplýsingar úr máli og myndum
beita hugtökum vistfræðinnar í rökrænu samhengi
fjalla um álitamál sem varða íslenska náttúru í víðum skilningi
vinna skýrslur um vistfræðileg efni
þekkja einkenni og áhrifaþætti ólíkra vistkerfa
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
geta tekið ábyrga og rökstudda afstöðu til vistfræðilegra dægurmála
tengja undirstöðuþekkingu í vistfræði við daglegt líf og sjá notagildi hennar
fjalla um vistfræði á gagnrýninn hátt og velta fyrir sér ólíkum sjónarmiðum og lausnum
Námsmat fer fram með fjölbreyttum og sífelldum hætti, þ.a. öll verkefni nemenda gilda til einkunnar