Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1434104450.58

    Erfðafræði
    LÍFF3ER05
    46
    líffræði
    erfðafræðin
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í áfanganum er fjallað um sögu erfðafræðinnar og stöðu hennar innan náttúruvísinda. Fjallað er um lykilatriði erfðafræðinnar, frumuskiptingu, litninga og gen, myndun kynfruma og frjóvgun. Einnig um erfðamynstur lífvera og hvað ræður kynferði þeirra. Litningar eru teknir til umfjöllunar og skoðað hvernig þeir stjórna myndun próteina í lífverum og atburðarás próteinmyndunar rakin. Breytingum á erfðaefni, stökkbreytingum og litningabreytingum er lýst ásamt sérkennum í erfðum örvera og fjallað um helstu aðferðir sem beitt er í erfðarannsóknum og erfðatækni. Fjallað er um tíðni og jafnvægi gena í ólíkum stofnum lífvera.
    5 einingar í líffæra- og lífeðlisfræði mannsins
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • kjarnaskiptingu (mítósa og meiósa)
    • helstu einkennum mendelskra erfða og erfða á sameindastigi
    • grunni stofnerfðafræði
    • gangi ríkjandi og víkjandi gena við mismunandi aðstæður
    • hlutverki kjarnsýra í heilkjörnungum, dreifkjörnungum og veirum
    • reglu Hardys og Weinbergs og notagildi hennar
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skýra út tengsl arfgerða og svipgerða
    • skýra út einföld dæmi erfðatækninnar
    • lýsa í máli og myndum einstökum fræðilegum þáttum erfðafræðinnar
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • segja fyrir um árangur eingena og fjölgena erfða
    • tengja saman DNA og erfðir út frá próteinmyndun
    • móta sér rökstudda afstöðu í siðfræðilegum álitamálum tengdum erfðafræði
    Námsmat fer fram með símati; tímakönnunum, verkefnaskilum og verklegum æfingum