Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1434103638.88

    Næringarfræði
    LÍFF2NF05
    60
    líffræði
    Næringarfræði
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Áfanginn miðar að því að nemendur öðlist góða undirstöðu í grundvallaratriðum næringarfræðinnar, s.s. hlutverki og gildi helstu næringarefna og hvernig líkaminn vinnur orku úr matnum. Þeir þekki almennar ráðleggingar um mataræði og næringarefni og geti valið fæðu í samræmi við þær og gefið öðrum einfaldar ráðleggingar um mataræði. Þeir átti sig á gildi næringar fyrir almennt heilsufar og holdafar og myndi sér skoðanir á mikilvægi hollrar næringu. Nemendur skulu jafnframt vera færir um að meta þær upplýsingar um næringu og heilsu sem eru á markaðnum í dag og læra að afla sér áreiðanlegra upplýsinga. Áhersla er einnig lögð á að nemendur skoði líkamsímynd, holdafar, offitu og átraskanir og skoði næringu í samhengi við hreyfingu.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mikilvægi næringar fyrir heilsu og vellíðan ólíkra hópa fólks
    • helstu næringarefnum og viti í hvaða fæðutegundum þau eru að finna
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • þekkja muninn á hinum ýmsu næringarefnum
    • lesa vörumerkingar og meta næringargildi vörunnar í heild og skammtastærð hennar og þannig meta gæði vörunnar (næringarlega)
    • meta skammtastærðir hinna ýmsu vörutegunda
    • nýta sér veraldarvefinn til að skoða og meta samsetningu stakrar máltíðar sem og allra máltíða dagsins
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • vega og meta gæði hinna ýmsu vörutegunda út frá næringargildi þeirra
    • vega og meta gæði fæðusamsetninga
    Námsmat fer fram með símati; tímakönnunum, verkefnaskilum og verklegum æfingum