Almenn stærðfræði, þar sem áhersla er á skipulögð og öguð vinnubrögð. Efnisþættir sem teknir verða fyrir í áfanganum eru: Almenn brot, talnareikningur bókstafareikningur, jöfnur, veldi og rætur. Unnið er með útreikninga og stærðfræðileg hugtök sem nýtast nemendum til áframhaldandi náms í stærðfræði svo og í daglegu lífi. Stefnt er að því að viðhalda og byggja ofan á þann grunn sem nemandi hefur þegar tileinkað sér.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Undirstöðuatriðum í almennum brotum og talnareikningi
Mikilvægi bókstafareiknings í daglegu lífi og námi
Grunnatriðum í jöfnureikningi
Veldum og rótum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Nota vasareikni, tölvu og aðrar reiknivélar
Nota algeng stærðfræðitákn
Vinna með tölur og bókstafi (breytur) á fjölbreyttan hátt
Leysa jöfnur af fyrstu gráðu og jöfnuhneppi
Beita velda- og rótarreglum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Finna mismunandi aðferðir og lausnir út frá gefnum upplýsingum
Setja fram tölulegar upplýsingar og skrá lausnir sínar á skipulagðan hátt
Beita skipulögðum aðferðum við lausn verkefna sem tengjast námsefninu
Temja sér gagnrýna en um leið skapandi hugsun
Tileinka sér sjálfstæð vinnubrögð
Áfanginn er verkefnadrifinn - leiðsagnarmat með símati er viðhaft alla önnina.
Áhersla er lögð á að nemendur vinni verkefni, þar sem þeir fá tækifæri til að vega og meta hugmyndir og þroska með sér rökhugsun.
Öll verkefni gilda til einkunnar - stunda þarf námið reglulega alla önnina.