Það kom upp villa
senda inn
Áfangi
Áfangi Nánari upplýsingar
Ohms lögmál, Rafsegulbylgjur, rafkraftar, samtenging viðnáma, þéttar
Nemendur vinna með lögmál viðfangsefnanna á margvíslegan hátt, bæði með útreikningum, verkefnum og verklegum æfingum.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Rafsegulbylgjum og eiginleikum þeirra
- Rafkröftum og hvernig þeir verka milli hluta
- Eiginleikum þétta og viðnáma
- Ohms lögmáli um hlutfall spennu, viðnáms og straums
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Reikna út ferla rafsegulbylgja og lýsa ferlum með tölum
- Reikna hleðslu agna
- Reikna og vinna með mismunandi gerðir þétta
- Vinna með lóðbolta og rafmagnsíhluti
- Reikna straum, spennu og viðnám í einföldum rafrásum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- leysa þau verkefni sem fyrir hann eru lögð í áfanganum
- beita þeim reikniaðferðum sem kenndar eru í áfanganum
- leysa verklegar æfingar og kynna niðurstöður þeirra
- sýna sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum
- bera ábyrgð á eigin námsframvindu
- vinna í hóp til þess að leysa raunveruleg vandamál með eðlisfræði
- setja fram eðlisfræðileg umfjöllunarefni á skýran og markvissan hátt í ræðu og riti
- tengja eðlisfræðina við daglegt líf og umhverfi og gera sér grein fyrir notagildi hennar
- skilja hvernig heimurinn virkar
Námsmat fer fram með fjölbreyttum og sífelldum hætti þ.a. öll verkefni gilda til einkunnar