Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1433979748.93

    Bylgjufræði
    EÐLI3HL05
    52
    eðlisfræði
    Hljóðfræði;Ljósfræði;Bylgjufræði
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Nemendur vinna með lögmál viðfangsefnanna á margvíslegan hátt, bæði með útreikningum, verkefnum og verklegum æfingum. Í áfanganum er fjallað um ljósfræði og linsur ásamt virkni þeirra. Að auki er hljóðfræði viðfangsefni áfangans þar sem hljóð er skoðað á mismunandi vegu. Ljós- og hljóðbylgjur sameinast svo í bylgjufræðum sem einnig er viðfangsefni áfangans. Nemendur kynnast hugtökunum í verklegum og bóklegum verkefnum.
    EÐLI2HR05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Hugtökum hljóðfræðinnar og eðliseiginleikum hljóðs
    • Hljóðbylgjum og doppler-hrifum
    • Ljósbrotum og eiginleikum ljóss í mismunandi efni
    • Linsum og virkni þeirra
    • Bylgjum í mismunandi formum, t.a.m. bylgjuhreyfingar á streng og fleti
    • Eiginleikum bylgja – endurvarp og bylgjubrot
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Reikna út hvernig hljóðbylgjur verða í mismunandi rýmum og hljóðgjöfum
    • Reikna út hraða hlutar út frá hljóðbylgjum og doppler-hrifum
    • Reikna hvernig ljós brotnar í mismunandi efnum
    • Reikna hvernig linsur verka á ljós sem fer í gegnum þær
    • Reikna hvernig bylgjur brotna og endurvarpast
    • Setja upp verklegar æfingar til að reyna útreikninga sína
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • leysa þau verkefni sem fyrir hann eru lögð í áfanganum
    • beita þeim reikniaðferðum sem kenndar eru í áfanganum
    • leysa verklegar æfingar og kynna niðurstöður þeirra
    • sýna sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum
    • bera ábyrgð á eigin námsframvindu
    • vinna í hóp til þess að leysa raunveruleg vandamál með eðlisfræði
    • setja fram eðlisfræðileg umfjöllunarefni á skýran og markvissan hátt í ræðu og riti
    • tengja eðlisfræðina við daglegt líf og umhverfi og gera sér grein fyrir notagildi hennar
    • Skilja hvernig heimurinn virkar
    Námsmat fer fram með fjölbreyttum og sífelldum hætti þ.a. öll verkefni gilda til einkunnar