Það kom upp villa
senda inn
Áfangi
Áfangi Nánari upplýsingar
Viðfangsefni
Varmafræði; Þrýstingur
Tillaga að bókstöfum/tölustöfum skóla
Lýsing
Nemendur vinna með lögmál viðfangsefnanna á margvíslegan hátt, bæði með útreikningum, verkefnum og verklegum æfingum. Í áfanganum er fjallað um lögmál varmafræðinnar, ljósfræði og þrýsting. Nemendur kynnast hugtökunum í verklegum og bóklegum verkefnum.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Lögmálum varmafræðinnar
Ljósbrotum og eiginleikum ljóss í mismunandi efni
Linsum og virkni þeirra
Þrýsting og tengdum útreikningum
Hvernig þrýstingur er notaður í daglegu lífi
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Framkvæma útreikninga skv. lögmálum varmafræðinnar
Reikna hvernig ljós brotnar í mismunandi efnum
Reikna hvernig linsur verka á ljós sem fer í gegnum þær
Reikna hvernig þrýstingur virkar, t.a.m. í vökvadælum
Setja upp verklegar æfingar til að reyna útreikninga sína
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
leysa þau verkefni sem fyrir hann eru lögð í áfanganum
beita þeim reikniaðferðum sem kenndar eru í áfanganum
leysa verklegar æfingar og kynna niðurstöður þeirra
sýna sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum
bera ábyrgð á eigin námsframvindu
vinna í hóp til þess að leysa raunveruleg vandamál með eðlisfræði
setja fram eðlisfræðileg umfjöllunarefni á skýran og markvissan hátt í ræðu og riti
tengja eðlisfræðina við daglegt líf og umhverfi og gera sér grein fyrir notagildi hennar
Skilja hvernig heimurinn virkar
Námsmat
Námsmat fer fram með fjölbreyttum og sífelldum hætti þ.a. öll verkefni gilda til einkunnar