Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1433978907.06

    Hreyfifræði
    EÐLI2HR05
    45
    eðlisfræði
    hreyfifræði
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Áhersla er lögð á að nemendur geti notað og unnið með SI – einingarnar og þekki mun á vektorstærð og stigstærð. Í áfanganum læra nemendur að vinna með hugtök hreyfifræðinnar og samband þess við vinnu, afl, núning o.s.frv. Einnig vinna nemendur með útreikninga á skriðþunga og atlagi. Nemendur kynnast hugtökunum í verklegum og bóklegum verkefnum.
    RAUN1NÁ04
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • SI - einingakerfi raunvísindanna
    • muninum á stigstærð og vektorstærð
    • hugtökum hreyfifræðinnar s.s. hraði og hröðun
    • krafthugtakinu og skilgreiningunni á krafti
    • 1., 2. og 3. lögmáli Newtons
    • hvað er átt við með orkuvarðveislu
    • hugtökunum vinna, orka, afl og nýtni
    • hvernig orka breytir um form og varðveitist í lokuðum kerfum
    • varðveislu skriðþungans og atlagi
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nota hreyfijöfnurnar til að reikna hraða, tíma, færslu, upphafshraða, lokahraða og hröðun hluta sem hreyfast eftir beinni línu
    • reikna út krafta sem verka á hluti á hreyfingu
    • nota fyrstu þrjú lögmál Newtons við úrlausn verkefna
    • framkvæma mælingar á hlutum sem hreyfast eftir beinni línu
    • skrá niðurstöður mælinga á skipulagðan hátt
    • tjá sig munnlega og skriflega um hugtök aflfræðinnar
    • reikna út afl, vinnu, skriðþunga ásamt því að tjá sig um útreikningana
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • útskýra skriflega og munnlega hugtök hreyfi og aflfræðinnar með því að taka dæmi úr daglegu lífi
    • skiptast á skoðunum og bregðast við viðmælendum sínum
    • sýna fram á lögmál hreyfi og aflfræðinnar með tilraunum, annaðhvort einn eða í samstarfi við aðra
    • leysa úr viðfangsefnum einn eða í samstarfi við aðra
    • þróa með sér aga, metnað, ábyrgð og jákvæðni í vinnubrögðum
    • meta eigið vinnuframlag
    Námsmat fer fram með fjölbreyttum og sífelldum hætti þ.a. öll verkefni gilda til einkunnar