Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1433934811.44

    Uppeldi, menntun og skólastarf
    UPPE2MS05
    21
    uppeldisfræði
    Uppeldi, menntun og skólastarf
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í áfanganum er fjallað um uppeldis- og menntunarfræði sem fræðigrein, rætur hennar, sögu og hagnýtingu. Lögð er áhersla á að efla skilning á mikilvægi uppeldis og menntunar og að nemendur öðlist hæfni til að takast á við störf er tengjast uppeldi og menntun. Hugtakið uppeldi er tekið til skoðunar og umræðu. Mismunandi viðhorf til mannlegs eðlis eru skoðuð í ljósi kenninga um uppeldi og menntun. Fjallað er um þróun uppeldis og menntunar og hugmyndafræði nokkurra þekktra uppeldisfrömuða. Fjallað verður um uppeldi í íslenskum samtíma, t.d. í tengslum við dagvistun, kynhlutverk, breytingar í fjölskyldum. Hugtök á borð við barnamenningu verða tekin fyrir og í því samhengi rætt um íþróttir, list, bækur, leiki og leikföng, fjölmiðla, næringu o. fl.
    SÁLF2US05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Mótunaraðilum uppeldis og menntunar í samfélaginu
    • Sérstöðu þeirra aðila og stofnana sem eru mótandi fyrir uppeldi og hvað þeir eiga sameiginlegt
    • Kenningum sem hafa áhrif á uppeldi og menntun
    • Margvíslegum könnunum á uppeldi og menntun
    • Mikilvægi þeirra sem starfa með börnum og unglingum
    • Aöalatriðum í sögu uppeldis og menntunar
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Beita einföldum kenningum í uppeldis- og menntunarfræðum
    • Túlka kannanir tengdar uppeldi og menntun
    • Greina á milli tilfinningalegs mats og faglegs mats á ýmsum þáttum sem hafa áhrif á uppeldi og menntun
    • Átta sig á menningarlegri fjölbreytni uppeldis- og menntunarviðmiða
    • Skoða innra starf menntastofnanna á faglegan máta
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Leggja sjálfur gagnrýnið mat á hvað er vænlegt til árangurs í uppeldi barna
    • Geta hagnýtt sér kenningar í raunhæfum verkefnum
    • Meta siðferðileg álitamál í tengslum við uppeldi og menntun
    • Afla sér heimilda eftir fjölbreyttum leiðum
    • Vinna úr rannsóknargögnum og leggja á þau mat
    • Sýna frumkvæði að raunhæfum lausnum
    • Meta eigin frammistöðu og annarra á gagnrýninn hátt
    Sífellt mat alla önnina. Nánar tilgreint í kennsluáætlun og í samræmi við skólanámskrá.